Við erum búin að flytja verkstæði okkar af Bíldshöfða á Vagnhöfða 5


Allt er á fullu við frágang á nýja staðnum og það fer að styttast í að við getum pústað og slappað af. Hér getur þú séð kort hvar við erum. 
 





Það eru
stórframkvæmdir framundan?

Nú fer að líða að því að við flytjum verkstæðið okkar af Bíldshöfðanum í frábært húsnæði að Vagnhöfða 5, þar sem næg bílastæði eru og rúmt verður um okkur.

Við ætlum að opna á nýjum stað um næstu áramót og við hlökkum mikið til.

 


Inn að morgni
- sóttur síðdegis


Ef þú átt bókaðan tíma hvenær sem er að degi til, en hentar að koma með bílinn til okkar að morgni milli kl. 8:00 til 10:0 þá getur þú fengið hann fyrir lokun þann sama dag.




Prufaðu að hringja

Þó þú eigir ekki bókaðan tíma, prufaðu að senda okkur línu eða hringdu, það gæti verið að við værum svo duglegir að það hafi opnast pláss sem þú gætir smollið inn í.